Ég var víst búin að lofa því þar sem ég var edrú að koma með
ýtarlega skýrslu af viðburðum helgarinnar...
Föstudagur:
Hittingurinn fluttist af bíóinu yfir á allan með smá viðkomu hjá
Sigga óla til að sækja mig og sigga óla.. því við vorum víst
eitthvað seint á ferðinni eins og vanalega... á allanum tóku allir
vel á því í bjórnum.. keyptum heilar 4 fötur á tilboðinu 5 í fötu
og þá var bjórinn BÚINN!! þannig við tóku skotkeppnir og sumir að
blæða hringinn og fóru því ekki ófáir þúsundkallarnir það kvöldið
hahaha... nema mín var náttla edrú og ég fékk síðustu
appelsínflöskuna úr kælinum og ég þori að veðja að það er ekki
ennþá buið að fylla á kælinn því ég gat ekki fengið appelsín á
laugardagskvöldinu heldur fékk vikugamlan appelsínusafa með
geymslubragði og flugu í kaupbæti... en nóg um það.. þar sem ólétta
konan var nú þreytt og fór snemma heim að sofa verður einhver annar
að koma með skýrslu hvað gerðist í eftirpartíum og fleiru því mér
skyldist að fólk hefði verið að skila sér frekar seint og illa heim
um morguninn hahaha.. ég var nú búin að vara þau við að fara nú
frekar rólega í þetta því það væri jú allur morgundagurinn eftir...
en maður er víst ekki vitur fyrr en eftir á 
Snilldarkvöld í alla staði... ýmislegt rifjað upp... doddi og
krummi tóku hjónaerjurnar á þetta og var mjög mikið hlegið.. sumt
breytist aldrei...
Laugardagur:
Byrjuðum á því að safna öllum þynnildunum saman haha.. allir
frekar timbraðir nema ég að sjálfsögðu.. eftir að Sandra var búin
að deila verkjatöflum á línuna var haldið uppí kirkjugarð með blóm
á leiðið hjá Hlyn, rosalega falleg blóm. Því næst var haldið niður
á bryggju í dorgveiðikeppni, með smá stoppi á bíóinu til að anda og
öðru stoppi á bensínstöðinni til að borða þynnkumatinn... voru það
ófáar pullurnar sem fóru ofan í liðið. örbylgjueldaðar því þau áttu
nú ekki von á því að fá þarna heilan her í pylsupartý
á bensó
var skipt í lið og var ég óléttakonan að sjálfsögðu kosin síðast :/
nei nei þeim var fyrirgefið það... allavega í mínu liði voru Einar,
Sandra, Eygló, Ívar og að sjálfsögðu ég.. í hinu liðinu voru Doddi,
Ingvar, Siggi Óli og Jóna. Auður beilaði sökum þynnku... það
varð að sætta sig við jafntefli í þessari þraut því það eina sem
veiddist var þari.
Næst var haldið á bíóið í sing star keppni og þurfti fólk aðeins
að drekka í sig kjark og ég átti að vera dómari
en svo
endaði þetta náttla á því að ég lét mig hafa það og tók lagið líka
með honum Ívari því við þurftum jú að rifja upp sönghæfileika okkar
síðan við vorum krakkar og tókum þátt í söngvakeppni um
verslunarmannahelgi... verð nú að segja það að þetta sing star
ævintýri gekk nú betur en sú keppni hahhaa.. en að sjálfsögðu
sigraði mitt lið þessa sing star keppni... næst var stefnan tekin á
skógræktina... þar sem ég var jú sú eina í ökuhæfu ástandi þá var
ég sjálfskipaður driver... Kagginn hans Ingvars var notaður til
þess að ferja fólkið og ég var nú alveg að fýla mig á jeppanum..
farið var fyrstu ferð og komið við hjá Ingvari til að sækja
gítarinn.. Doddi ákvað að vera töffari og standa upp um topplúguna
á bílnum og var reynt að mana mig uppí alls konar vitleysu eins og
að stökkva á hraðahindrunum með hann uppúr topplúgunni... en þar
sem ég hafði vitið en ekki þau lét ég ekki undan og er því doddi
heill í dag haha...Svo var farin önnur ferð að sækja restina af
liðinu og á sömu mínútu og við brunuðum inní skógræktina mættu
pizzurnar á staðinn.. ég veit nú ekki hvort það hefði átt að vera
einhver dagskrá í skógræktinni en dagskráin fór á þann veg að við
fundum okkur bekk, borðuðum pizzur, drukkum bjór nema ég fékk smá
af blandinu hans Ingvars
svo stóð Ingvar sig eins og hetja með
gítarinn og við sungum og lágum í sólbaði og höfðum það gott...
hefði sko ekki getað heppnast betur... Við stelpurnar yfirgáfum
skógræktina á undan strákunum því jú við þurftum lengri tíma til
þess að taka okkur til en strákarnir og þeir ætluðu bara að labba
heim... við rákumst þá á gestabók í skógræktinni og gáfum okkur
tíma til að skilja eftir nokkrar línur, það var kvittað fyrir ykkur
líka strákar og það er eins gott að þið hafið tekið til eftir ykkur
áður en þið fóruð því annars verðið þið leytaðir uppi og látnir
þrífa eftir ykkur því við stelpurnar tókum það skýrt fram í
gestabókinni að við hefðum tekið til áður en við yfirgáfum svæðið
og restin væri á ykkar ábyrgð... næst föttuðum við það að við
skyldum strákana eftir í skógræktinni með ALLT ÁFENGIÐ... þetta
boðaði ekki gott.. og ég held að það hafi nú ekkert af því skilað
sér til baka... allavega ekki skotflöskurnar...
næsta mál á dagskrá var þessi svakalega grillveisla heima hjá
honum Krumma Kollu og var búið að auglýsa það vel útum allan bæ...
Kolla og Hjalli voru að sjálfsögðu á staðnum og búin að grilla
handa okkur þetta dásamlega lambakjöt... þetta var ekkert smá góður
matur.. og ég verð að segja söguna af hláturskastinu mínu við
matarborðið... þetta byrjaði þannig að ég missti kartöflubita í
gólfið og þar sem ég og bumban mín tökum mikið pláss þá á ég
voðalega erfitt með að beygja mig mikið þannig ég bið dodda að taka
bitann uppúr gólfinu svo ég þurfi ekki að beygja mig... á meðan
hann er að borgra undir borðinu að sækja bitann þá tekur Siggi Óli
kjötbitann af disknum hans Dodda og byrjar að borða hann... Ég
náttla spring úr hlátri, ívar og Auður sáu þetta líka og þau fara
að hlægja líka nema ég bara get ekki hætt að hlægja og doddi skylur
ekki neitt í neinu... Hann heldur bara áfram að borða salatið sitt
og fattar ekki að það er ekkert kjöt og ég bara get ekki hamið mig
fyrir hlátri... svo var ég nú að komast yfir þetta nema þá er Siggi
búinn með bitann og klappar dodda á öxlina og þakkar honum fyrir
matinn... þá gat ég ekki meir og fer aftur að hlægja og aumingja
ívar og auður geta náttla ekki annað en hlegið líka því jú þau
vissu hvað var í gangi... ég varð síðan að játa mig sigraða og
upplýsa Dodda greyið hvað væri svona fyndið og honum fannst þetta
nú ekkert jafnfyndið og mér en þetta tók allavega langan tíma fyrir
mig að koma matnum niður..
Partýið hélt áfram allir að spjalla og drekka og í góðum fíling
með Ingvari og Gítarnum útá palli... Inni hljómaði svo 80's
tónlistin í botni.. því þemað var jú 1983 okkar fæðingarár og voru
allir klæddir samkvæmt því.. eða svona næstum því... mamma var svo
góð að eiga ennþá óléttubuxurnar sem hún gekk í þegar hún var ólétt
af mér og svo eiturgula kápu sem hún saumaði líka þegar hún var
ólétt af mér þannig það má segja það að ég hafi verið í
ÓGEÐSLEGUSTU fötunum hahaha.. en það voru allir mjög flottir... við
þurfum bara að skella inn hópmyndinni hérna... Hvanndalsbræður
kíkktu í heimsókn til okkar í partýið og tóku eitt lag fyrir
okkur... það var mjög gaman... Árni heiðar mætti líka og tók með
okkur nokkra slagara.. svo það næsta sem stóð uppúr var þegar Doddi
fór að sýna listir sínar... Hann þurfti að kenna okkur að dansa...
og svo fór fram kennsla í því hvernig ætti að reyna við stelpur á
djamminu og það var ekkert lítið hlegið að því og krummi mjög sár
við dodda að hann hafi nú ekki kennt sér þetta fyrr!! þarna var
Doddi kominn á skrið... jebbs hann þurfti sjálfboðaliða í næsta
atriði og var maðurinn minn hann Jói fyrir valinu og hann lét sig
hafa það... Doddi ætlaði að snerta á honum varirnar samt án þess að
snerta þær... og hann lét jóa loka augunum og svo hafði hann ekki
hugmynd um hvernig hann ætlaði að útfæra þetta þannig þetta endaði
þannig að Doddi kyssir hann þessum rembingskossi og ég hélt að ég
myndi nú bara missa vatnið af hlátri í þetta skiptið... þeir sem
ekki þekkja jóa vita kannski ekki að hann er með mestu Homma fóbíu
EVER... hann bara hleypur í felur ef hann sér homma einhverstaðar
útá götu þannig ég gat ekki annað en hlegið því þetta var bara
morðtilraun í hans huga aumingja doddi greyið fer að afsaka sig með
að hann vissi ekki hvernig hann ætti að enda þennan brandara og
þetta var víst einfaldasta lausnin 
Eftir þessa frábæru syrpu hjá Dodda var haldið í bæinn og
stefnan var tekin á bíóið... þar var einhver hrukkudýrasamkoma og
fóru því allir á allan í staðinn.. aðalpartýið var víst úti því
eftir að reykingar voru bannaðar innanhúss eru allir bara
úti... Ég fór síðan bara snemma heim eða um 3 leytið þá voru
einhverjir komnir á dansgólfið og einhver hellingur á barnum og
annar hellingur úti þannig það sem gerðist eftir 3 er ekki á mína
ábyrgð og þarf einhver annar að gefa lýsingu á því...
Þar sem ég kom með þennan pistil þá skora ég á Glóu eða Ívar að
setja inn myndirnar því þið voruð svo dugleg með myndavélarnar...
krummi svo þarft þú að redda hópmyndinni sem mamma þín tók...
það er eitthvað svona myndaalbúm inná stjórnkerfinu og það verður
ykkar á læra á það
mínu hlutverki hér í bili er lokið...
Ég þakka ykkur fyrir ÆÐISLEGA helgi og við þurfum að gera
þetta aftur sem fyrst... ekkert formlegt bara hittast og gera
eitthvað skemmtilegt... þá vona ég líka að þáttakan verði meiri og
þessir lúsablesar sem komu ekki núna mæti næst... því það verður
sko alveg klárt að þessi hópur sem kom saman núna lætur sig ekki
vanta í framtíðinni 
kv. Óletti yfirritarinn 